Nýliðar Brunavarna Húnaþings vestra

Frá vinstri : Eva Dögg Pálsdóttir, Karítas Aradóttir, Baldvin Freyr Hannesson og Hermann Grétar Jako…
Frá vinstri : Eva Dögg Pálsdóttir, Karítas Aradóttir, Baldvin Freyr Hannesson og Hermann Grétar Jakobsson. Á myndina vantar Harald Teodor Ödqvist.

Fimm nýir einstaklingar gengu formlega til liðs við slökkviliðið í gær. Þetta er ákaflega góð viðbót við þann góða hóp slökkviliðsmanna liðsins sem fyrir er.

Í fyrsta skipti í sögu Brunavarna Húnaþings vestra ganga tvær konur til liðs við okkur og eru það frábærar fréttir fyrir samfélagið. Hlutfall kvenna í störfum slökkviliðs og sjúkraflutninga á landinu hefur hækkað mikið undanfarin ár sem er ákaflega jákvæð þróun. Ég tel okkur mjög heppin að fá þau öll inn á sama tíma og alls ekki sjálfgefið fyrir lítið sveitarfélag eins og okkar að eiga jafn öflugan hóp slökkviliðsmanna - og nú kvenna á okkar svæði.

Við tökum vel á móti þesssum fríða hópi og bjóðum þau öll hjartanlega velkomin til starfa og munum gera okkar allra besta til þess að nýliðarnir okkar fái sem besta þjálfun og farnist vel í krefjandi starfi sem starf slökkviliðsmanns er.

Valur Freyr Halldórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Húnaþings vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?