Niðurstöður könnunar um líðan, félagslega þátttöku og þjónustu við eldri borgara í Húnaþingi vestra
Könnunin var lögð fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra og bárust alls 23 svör.
Heilsa og líðan
Flestir þátttakendur mátu bæði líkamlega og andlega heilsu sína góða eða mjög góða. Nokkrir mátu heilsu sína sæmilega og fáeinir töldu hana slæma. Þrátt fyrir almennt góða heilsu komu fram vísbendingar um einamaleika hjá hluta þátttakanda. Nokkrir sögðust stundum eða oft finna fyrir tómleika, sakna þess að hafa fólk í kringum sig eða upplifa sig afskipt.
Á sama tíma sögðust flestir eiga einhverja eða marga einstaklinga sem þeir gætu leitað til eða treyst á ef á þyrfti að halda. Meiri hluti svarenda sagðist sjaldan eða aldrei vera einmana, þó að hluti upplifði einmanaleika stundum eða oft.
Félagsleg þátttaka og samskipti
Niðurstöðurnar sýna að margir taka þátt í félagsstarfi eða hitta aðra reglulega. Samskipt við fjölskyldu, vini eða ættingja voru yfirleitt tíð, bæði í gegnum heimsóknir eða síma- eða netsamskipti. Margir sögðust vera í sambandi við aðra daglega eða nokkrum sinnum í viku.
Flestum fannst auðvelt að eða hvorki auðvelt né erfitt að nálgast upplýsingar um félagsstarf og réttindi eldri borgara, þó nokkrir nefndu að það gæti verið erfitt.
Aðstoð í daglegu lífi
Meiri hluti þátttakanda sagðist ekki fá aðstoð við dagleg verkefni á boð við þrif, innkaup, böðun eða heimahjúkrun. Þeir sem fengu aðstoð nefndu helst ættingja eða Heimaþjónustu Snældu.
Fjárhagsstaða
Flestir þátttakendur mátu fjárhagsstöðu sína góða eða sæmilega og meiri hlutinn sagðist sjaldan eða aldrei hafa fjárhagsáhyggjur. Nokkrir nefndu þó að þeir upplifðu fjárhagsáhyggjur stundum eða oft.
Samantekt
Niðurstöðurnar benda til þess að almennt búi eldri borgarar við góða heilsu, regluleg félagsleg samskipti og tiltölulega gott stuðningsnet. Hins vegar kemur fram að hluti hópsins upplifir einmanaleika og félagslega einangrun að einhverju leyti. Þá telja sumir erfitt að nálgast upplýsingar um réttindi og þjónustu. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að halda áfram að efla félagslegt starf, upplýsingagjöf og stuðning við eldri borgara í samfélaginu.