Niðurrif húsa á steypustöðvarreit

Niðurrif húsa á steypustöðvarreit

Húnaþing vestra auglýsir eftir tilboði í að fjarlægja húsnæðin að Norðurbraut 28, 30 og 32 ásamt gamla steypusílóinu og steypustöðinni við Norðurbraut 32. Um er að ræða niðurrif ásamt því að fjarlægja allt byggingarefni og grunn húsanna til förgunar eða nýtingar annarsstaðar. Vilji sveitarfélagsins er að allar þessar byggingar verði farnar fyrir 1. júní 2027.

Var efnið á síðunni hjálplegt?