Námskeið á vegum Farskólans vorönn 2022

Námskeið á vegum Farskólans vorönn 2022

Undanfarin ár hefur Farskólinn átt í afar farsælu samstarfi við stéttarfélögin Ölduna, Kjöl, Samstöðu, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar þar sem þessi félög bjóða félagsmönnum sínum á námskeið.

Vorið 2022 bjóða þessi félög uppá tíu afar spennandi námskeið og að þessu sinni er þetta blanda af nýjum námskeiðum og námskeiðum sem hafa slegið í gegn, færri komist að en vildu og/eða hróður þeirra borist út og við verið beðin um að bjóða aftur, sem okkur er ljúft að verða við.

Eins og ávallt þá eru námskeiðin öllum opin og bendum við félagsmönnum annarra félaga að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Það er takmarkað sætaframboð þannig að við hvetjum fólk til að skrá sig sem fyrst til þess að tryggja sér sæti og já það má skrá sig á eins mörg og hver vill.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Farskólans eða hér og velja "Stéttafélaganámskeið" https://farskolinn.is/namskeid/

Var efnið á síðunni hjálplegt?