Munum leiðina, vitundarvakning um Alzheimer

Bekkurinn á gönguleið við Laugarbakka.
Bekkurinn á gönguleið við Laugarbakka.

Alzheimersamtökin hafa unnið að aukinni vitundarvakningu um Alzheimer um langt árabil. Liður í því er átakið Munum leiðina sem felst í því að koma upp fjólubláum bekkjum í sveitarfélögum víða um land en fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúk­dóms­ins og annarra heila­bil­un­ar­sjúk­dóma. Nú hafa verið settir upp þrír slíkir bekkir í Húnaþingi vestra, einn við Riis-hús á Borðeyri, einn á gönguleið gönguhópsins á Laugarbakka og einn við skólabrúna á Hvammstanga. Sveitarfélagið festi kaup á bekkjunum og nemendur í vinnuskólanum máluðu þá í fjólubláa litnum.

Bekkirnir eru stöðugir og veglegir trébekkir. Þeir setja svip á umhverfi sitt í fallega fjólubláa litnum og verða vonandi góðir áningarstaðir fyrir okkur öll á göngu um sveitarfélagið. Vonandi verða þeir líka til þess að auka vitund um Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma.

Bekkurinn við skólabrúna á Hvammstanga.

Bekkurinn nýtur sín vel við Riis-hús á Borðeyri.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?