Meðmælasöfnun vegna sveitarstjórnarkosninga

Meðmælasöfnun vegna sveitarstjórnarkosninga

Kjörstjórn Húnaþings vestra hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír ef framboð kjósa svo en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með framboðum hér Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is

Framboðum skal skila í síðasta lagi 10. apríl kl. 12:00 og verður nánar auglýst síðar.

 

Kjörstjórn Húnaþings vestra

Sigurður Þór Ágústsson

Gunnar Örn Jakobsson Skjóldal

Ragnheiður Sveinsdóttir

Var efnið á síðunni hjálplegt?