Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa.

 

Umsóknarfrestur í Matvælasjóð er til og með 21. september!

Starfsmenn SSNV, Sveinbjörg Pétursdóttir og Kolfinna Kristínardóttir, bjóða upp á aðstoð og ráðleggingar varðandi styrkumsóknir. Hægt er að hafa samband á sveinbjorg@ssnv.is, kolfinna@ssnv.is eða hér á samskiptamiðlum SSNV til að bóka tíma. Um staðarfund gæti verið að ræða eða í gegnum netið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?