Maria Gaskell nýr skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra

Maria Gaskell nýr skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra

Á 339. fundi sveitarstjórnar var samþykkt að ráða Mariu Gaskell sem skólastjóra Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Maria hefur langa reynslu af tónlistarkennslu og stjórnun bæði hér á landi og erlendis.

Maria er með B.A. gráðu í tónlist og ensku frá Christ Church háskóla í Bretlandi. Hún hefur einnig lokið P.G.C.E gráðu í tónlistarkennslu frá SPA háskóla í Bretlandi ásamt M.Ed. gráðu í tónlist og skapandi listum frá Exeter háskóla í Bretlandi.

Maria hefur starfað sem tónlistar- og tónmenntakennari í yfir þrjá áratugi. Þau hljóðfæri sem hún hefur kennt á eru m.a. píanó, saxafónn, blokkflauta, gítar, harmonika, klarinet auk söngs. María hefur sett upp söngleiki og samið tónlist í samvinnu við nemendur. Hún hefur gegnt stöðu deildarstjóra og sviðsstjóra tónlistardeildar við nokkra tónlistarskóla, í Bristol, Seyðisfirði, Swiss og London.

Maria kom fyrst til Íslands árið 1991 og kenndi þá við Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu og Húnavallaskóla þar sem hún stjórnaði einnig hljómsveitum og kórum. Maria bjó í 13 ár á Seyðisfirði og starfaði þar sem kennari og organisti. Þar kom hún að ýmsum verkefnum s.s. stjórnun kóra og hljómsveita ásamt því að starfa  með leikfélaginu.

Við bjóðum Mariu Gaskell velkomna til starfa.

Var efnið á síðunni hjálplegt?