Margur er knár þó hann sé smár

Margur er knár þó hann sé smár

Í vor kom út rannsókn þar sem atvinnulíf, búsetuskilyrði og hugarfar íbúanna í V-Hún, A-Hún og Dölunum var borið saman. Tilefnið var endurtekin óvenju góð útkoma V-Hún í umfangsmikilli íbúakönnun í öllum landshlutum en síðri útkoma í nokkuð sambærilegum samfélögum eins og Dölunum og A-Hún. Leitað var skýringa í þeirri viðleitni til að efla mætti stöðu fámennari samfélaga hérlendis.

Boðað er til fundar þar sem Vífill Karlsson höfundur rannsóknarinnar fer yfir helstu niðurstöður og hvaða lærdóm mætti draga af þeim. Einnig verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður um efni rannsóknarinnar og hvað sé framundan í rannsóknum á þessu sviði.

Fundurinn fer fram þann 7. júní kl. 17 í Félagsheimilinu Hvammstanga. Öll velkomin.

Dagskrá

Kl. 17:00-17:30 Erindi um niðurstöður rannsóknarinnar

Kl. 17:30-18:00 Fyrirspurnir úr sal og umræður

Kl. 18:00 Formlegum fundi slitið en óformlegar umræður við höfund rannsóknar í boði ef þörf er á eða áhugi

Skýrsla með niðurstöðu rannsóknarinnarm er aðgengileg hér

Var efnið á síðunni hjálplegt?