Malbikunarframkvæmdir á Hvammstanga

Plan fyrir skólabíla neðan við Grunnskólann.
Plan fyrir skólabíla neðan við Grunnskólann.

Þessa dagana stendur yfir malbikun á Hvammstanga. Meðal verkefna vinnuflokksins sem heldur utan um verkið er stæði fyrir skólabíla neðan við Grunnskólann, göngustígur frá Íþróttamiðstöð suður að brúnni, Norðurbraut eftir viðhaldsframkvæmdir hitaveitunnar ásamt ýmsum smærri viðgerðum á gatnakerfinu.

Göngustígur við grunnskóla, frá Íþróttamiðstöð, suður að brú. Löngu tímabær framkvæmd. Er hún liður í endurnýjun skólalóðar sem mun verða fram haldið á komandi misserum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?