Lýsing við göngustíg meðfram Syðri Hvammsá, Hvammstanga.

Lýsing við göngustíg meðfram Syðri Hvammsá, Hvammstanga.

Nýtt hverfi hefur verið að rísa við Lindarveg á Hvammstanga. Hverfið er staðsett nærri göngustíg við Syðri-Hvammsá sem er eina gönguleiðin að og frá hverfinu. Því var ákveðið að setja upp lýsingu við stíginn og geta nú skólabörnin í hverfinu gengið í og úr skóla á upplýstum stígnum sem hefur að mestu verið ófær vegna myrkurs, núna í mesta skammdeginu.

Stígurinn er staðsettur á mjög fallegu svæði meðfram ánni og tengir kauptúnið við útivistar- og íþróttasvæðið í Kirkjuhvammi og gönguleiðir sem þar eru. Lýsingin eykur útivistarmöguleika, en stígurinn er mikið notaður af íbúum og gestum. Þó að lýsingin nái núna aðeins upp að „vaðinu“ á Ásnum þá er fallegt að ganga hann í rökkri, þó eingöngu sé gengið fram og til baka. Auðvelt er líka að bregða sér aðeins út fyrir stíginn og koma sér fyrir í lítilli laut við ánna til að hugleiða og/eða upplifa stjörnubjartan himininn.

Njótum á aðventunni

 

Myndir: Ína Björk Ársælsdóttir

xxxxxx

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?