Lokað fyrir losun á efni uppá Ási

Lokað fyrir losun á efni uppá Ási

Lokað hefur verið fyrir efnislosun á byggingarúrgangi upp á Ási fyrir ofan Hvammstanga. Enn má þó fara með garðaúrgang á neðra svæði. 

Tekið er á móti efni á Syðri Kárastöðum.

Óvirkur úrgangur (steypa, hellur, flísar, gler o.þ.h.), sem og möl og gróft moldarblandað efni  er losað vestan við geymslusvæði á Kárastöðum.

Malarblönduð mold fer á svæði norðar upp við skurð.

Sjá nánar kort með staðsetningum.

Allt annað efni, .s.s. timbur, asbest, plaströr, steinull o.þ.h. skal skilað á móttökustöð Hirðu, Hvammstanga. 

Malbiki skal skilað í móttöku hjá malbikunarfyrirtækjum. Verið er að vinna í að finna söfnunarstað fyrir malbik í héraði. 

Eins er verið að vinna í að taka til á svæðinu til að gera aðkomuna greiða og skilvirka. 

Kort af móttöku á Kárastöðum

Var efnið á síðunni hjálplegt?