Lógókeppni félagsmiðstöðvarinnar Órion

Logókeppnin sem ungmennaráð var með fyrir félagsmiðstöðina Órion er nú afstaðin.

Tillagan sem var valin sem besta myndin er frá þeim mæðgum Oddnýju Helgu Sigurðardóttur og Oddnýju Sigríði Eiríksdóttur.

Ungmennaráð óskar þeim mæðgum innilega til hamingju, margar flottar tillögur komu inn og vil ungmennaráð þakka öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna!

Hér má sjá vinningsmyndina:

ORION.JPG

 

Fyrir hönd Ungmennaráðs, Tanja Ennigarð íþrótta-og tómstundafulltrúi

Var efnið á síðunni hjálplegt?