Ljósin tendruð á jólatréinu

Ljósin tendruð á jólatréinu

Í morgun voru ljósin tendruð á jólatréinu okkar við Félagsheimilið á Hvammstanga.

Vegna sóttvarnatakmarkana var ekki hefðbundin dagskrá við félagsheimilið.  

Börn í 1. - 4. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra voru þó viðstödd, gengu kringum jólatréð og sungu jólalög. Giljagaur leit við og Þórey Edda Elíasdóttir flutti ávarp.  Streymt var beint frá athöfninni, horfa má á upptökuna hér. 

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að njóta aðventunnar  í faðmi fjölskyldunnar.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?