Listaverkið Þróun komið á sinn stað

Verkið komið á sinn stað. Höfundurinn, Marinó Björnsson, stendur við verkið að lokinni uppsetningu.
Verkið komið á sinn stað. Höfundurinn, Marinó Björnsson, stendur við verkið að lokinni uppsetningu.

Á 50 ára afmæli Hvammstanga árið 1988 var listaverkið Þróun vígt við hátíðlega athöfn. Afmælisnefnd efndi til samkeppni um verkið og varð tillaga Marinós Björnssonar að listaverkinu Þróun hlutskarpast. Efniviðurinn sem verkið var gert úr á sínum var ekki nægilega hentugur og fór svo að það eyðilagðist innan fárra ára og ákveðið að fjarlægja það. Síðan hefur stólpinn sem steyptur var undir verkið staðið tómur. 

Á síðasta ári ákvað sveitarstjórn í ljósi góðrar afkomu sveitarsjóðs að setja fjármuni í nokkur verkefni, þar með talið endurgerð listaverksins. Það er nú komið á sinn stað og flutti Karl Sigurgeirsson sem sat í afmælisnefndinni nokkur orð um tilurð verksins á hátíðarhöldunum á 17. júní. Við sama tækifæri hélt höfundur verksins sýningu í forsal Félagsheimilisins Hvammstanga á skissum að 50 tillögum sem hann gerði að listaverki á sínum tíma og afmælisnefnd valdi úr. Það var augljóslega enginn skortur á tillögum. 

Verkið hefur skírskotun í samfélagsgerðina í sveitarfélaginu. Súlurnar þrjár tákna atvinnuvegina, kúlan táknar mannlífið og samfélagið og aldan vísar í nálægðina við hafið.

Málmsmiðjan Hella sá um smíði á verkinu að undanskilinni kúlunni sem smíðuð var í Kína. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?