Lið Grunnskóla Húnaþings vestra sigraði vesturlandsriðil í Skólahreysti 2. árið í röð.

Lið Grunnskóla Húnaþings vestra sigraði vesturlandsriðil í Skólahreysti 2. árið í röð.

Lið Grunnskóla Húnaþings vestra sigraði í skólahreysti fimmtudaginn 21. mars sl.

 Frábær árangur tvö ár í röð hjá kröftugum krökkum. Liðið sigraði með 51 stigi og næst á eftir kom Grundaskóli með 43,5 stig.

Guðmundur Grétar var efstur í dýfum og í 2. sæti í upphýfingum.  Leonie hékk lengst allra í keppni dagsins og var efst í armbeygjum.

Liðið skipa : Guðmundur Grétar Magnússon, Hilmir Rafn Mikaelsson, Ingunn Elsa Apel Ingadóttir og Leonie Sigurlaug Friðriksdóttir.

Það er því ljóst að liðið mun keppa í lokakeppninni þann 8. maí.

Til hamingju nemendur og íbúar í Húnaþingi vestra!

Var efnið á síðunni hjálplegt?