Leikskólinn Ásgarður, Hvammstanga fær gjafir frá Bjarma

lskasgardurmynd.JPG

Fulltrúar frá Lionsklúbbnum Bjarma þeir Guðmundur Haukur Sigurðsson og Eggert Karlsson komu færandi hendi og gáfu leikskólanum Ásgarði barnahjól, fjögur til nota utandyra og tvö til nota innandyra. Það ríkti mikil eftirvænting hjá nemendum leikskólans þegar þau fengu að opna pakkann. Þessa dagana er mikill áhugi hjá nemendum að komast í Útgarð og hjóla enda leikur veðrið við okkur. Við sendum félagsmönnum í Lionsklúbbnum Bjarma bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf til skólans, það er ómetanlegt að eiga ykkur að.

Kveðja nemendur og starfsfólk Ásgarðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?