Laust starf stuðningsfulltrúa í Grunnskóla Húnaþings vestra

Við Grunnskóla Húnaþings vestra er laust tímabundið starf stuðningsfulltrúa á yngsta stigi sem einnig starfar í frístund. Um er að ræða fullt starf frá seinni hluta nóvember 2015 til 15. ágúst 2016 (hægt er að semja um skemmri tíma). Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00
Leitað er að einstaklingi með skipulagshæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum, hæfni til að sýna frumkvæði í starfi og taka þátt í samstarfi.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.
Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri 4552911/8625466
Umsóknafrestur er til og með 19. október 2015. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið grunnskoli@hunathing.is.
Skólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?