Laust starf ráðgjafa

Laust starf ráðgjafa

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir laust starf í skólaþjónustu og almennri félagsþjónustu. Starfshlutfall er 75%-100% með starfsstöð á Hvammstanga.

Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi og hluti starfsins er viðvera og ráðgjöf í skólum Húnaþings vestra. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og færni til að vinna með börnum.

Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag sem leggur metnað í að veita góða persónumiðaða þjónustu. Leiguhúsnæði er á staðnum.

Helstu verkefni eru:

  • Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna í skóla- og félagsþjónustu sem og málefni fatlaðra.
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna barna og fjölskyldna þeirra.
  • Þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum.
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi með skólum, heilbrigðisstofnunum, lögreglu og öðrum sem koma að málefnum barna og fjölskyldna þeirra.
  • Önnur verkefni sem sviðsstjóri felur viðkomandi og falla undir sviðið.

Menntun:

  • Starfsréttindi félagsráðgjafa og/eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Önnur menntun eða víðtæk reynsla kemur til greina.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2022 og umsóknir berist á netfangið siggi@hunathing.is

Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs, siggi@hunathing.is eða í síma 4552400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?