Laus störf leikskólakennara/leiðbeinenda í leikskólanum Ásgarði

Laus störf leikskólakennara/leiðbeinenda í leikskólanum Ásgarði

            Leikskólinn Ásgarður auglýsir:

 

Þrjár lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Leikskólakennarar/leiðbeinendur

  • Tímabundið 100% starf frá 1. október 2025 til 3. júlí 2026 ( eða eftir samkomulagi)

 

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 17. september næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?