Laust starf vélamanns í þjónustumiðstöð

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða áhugasaman, jákvæðan og úrræðagóðan vélamann í fullt starf í þjónustumiðstöð (áhaldahús) sveitarfélagsins frá 1 desember nk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Full vinnuvélaréttindi skilyrði
  • Vigtarréttindi kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og  skipulagshæfni.
  • Rík þjónustulund

Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og starfsgreinasambands Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnsteinn Ó Andrésson, rekstrarstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs í síma 455-2400 og á netfanginu unnsteinn@hunathing.is Umsóknum, sem skulu vera skriflegar, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir kl. 16:00,  þriðjudaginn 22.ágúst nk. Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja starfsumsókn.

Sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?