Lausar stöður við leikskólann Ásgarð og Borðeyrarskóla

Lausar stöður við leikskólann Ásgarð og Borðeyrarskóla

Við leikskólann Ásgarð á Hvammstanga eru lausar stöður:

  • ·         Deildastjóri eldra stigs, 100% starf frá 15. september 2014.
  • ·         Matráður, 40% starf, mánudaga og þriðjudaga frá 1. september 2014.

Við Borðeyrarskóla, samrekinn leik- og grunnskóla  er laus staða:

  • ·         Deildastjóri í leikskóla 70% starf frá 15. ágúst 2014. Í starfinu felst einnig umsjón með daglegum rekstri leik- og grunnskóla í samráði við skólastjórnendur leikskólans Ásgarðs og Grunnskóla Húnaþings vestra. Í Borðeyrarskóla eru sjö nemendur í grunnskóla og fimm nemendur í leikskóla.

 

Við leitum að einstaklingum með:

-Tilskilda menntun

-Skipulagshæfileika

-Lipurð í mannlegum samskiptum

-Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi og taka þátt í þverfaglegu samstarfi

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.

Upplýsingar um skólastarf í Húnaþingi vestra má finna á www.leikskolinn.is/asgardur. og http://www.skolatorg.is/kerfi/hunathingvestra/skoli/

Umsóknafrestur er til 10. ágúst næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Frekari upplýsingar veitir  Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 4552343/8918264

 

Skólastjórnendur

Var efnið á síðunni hjálplegt?