Lausar stöður við leikskólann Ásgarð á Hvammstanga

Lausar stöður við leikskólann Ásgarð á Hvammstanga

Við leikskólann Ásgarð eru lausar stöður leikskólakennara / leiðbeinanda í 100% störf. Ein staða til frambúðar og ein staða tímabundið.

Við leitum að einstaklingum með:

  • Tilskilda menntun, leyfisbréf
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar umskólastarfið má finna á www.asgardur.leikskolinn.is

Hugmyndafræði leikskólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 20.apríl næstkomandi og þurfa viðkomandi að hefja störf frá 1. mai Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Þórunn Helga Þorvaldsdóttir skólastjóri leikskóla í síma 451-2343 / 8661565.

Var efnið á síðunni hjálplegt?