Lausar stöður við Leikskólann Ásgarð

Lausar stöður við Leikskólann Ásgarð

Leikskólinn Ásgarður auglýsir lausar til umsóknar tvær tímabundnar 100% stöður leikskólakennara/leiðbeinenda með möguleika á framtíðarráðningu.

  • Ein tímabundin 100% staða leikskólakennara/leiðbeinenda, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 
  • Ein tímabundin 100% staða leikskólakennara/leiðbeinenda, frá 1. apríl 2022
  • Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

 

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Fagmennska
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Gleði og jákvæðni

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru öll kyn hvött til að sækja um störfin.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Skemmtilegur starfsmannahópur vinnur í Ásgarði og langar okkur að fá liðsauka. Við vinnum eftir hugmyndafræði sem byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 1. febrúar 2021 næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Guðný Kristín Guðnadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 451 2343 / 846 0162 eða Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 451-2343 / 891-8264  eða 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?