Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Við leikskólann Ásgarð eru laus:

  • Eitt ótímabundið 100% stöðugildi:
    • Frá maí 2024.
  • Eitt tímabundið 100% stöðugildi:
    • Tímabil 18. mars – 10. júní 2024.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Við leitum að einstaklingum með:

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun.
  • Áhuga á að starfa með börnum.
  • Fagmennsku og lausnamiðaða hugsun.
  • Skipulagshæfileika.
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Gleði og jákvæðni.

 

 

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 13. mars næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?