Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Starfsfólk óskast í leikskólann Ásgarð

Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum sem hafa áhuga á taka þátt í fjölbreyttu og gefandi starfi með börnum.

Óskað er eftir starfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst. Jafnframt eru lausar stöður frá 4. janúar 2027.

Allar ráðningar eru tímabundnar til 13. júlí 2027, leikskólastjóri veitir nánari upplýsingar.

Hvetjum öll til þess að sækja um.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulagshæfileikar og stundvísi
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á Leikskólinn Ásgarður eða með því að hafa samband við leikskólastjóra, Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162.

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 23. nóvember næstkomandi. Umsókn skal berast rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is. Umsókninni á að fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?