Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Tvær lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Leikskólakennarar/leiðbeinendur

 

Leikskólinn Ásgarður auglýsir:

 

  • Ein tímabundin 100% staða frá 2. nóvember 2026 til 13. júlí 2027
  • Ein tímabundin 100% staða frá 4. janúar 2027 til 13. júlí 2027

 

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Öll eru hvött til að sækja um.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulagshæfileikar og stundvísi
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á Leikskólinn Ásgarður eða með því að hafa samband við leikskólastjóra, Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162.

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 7. október næstkomandi. Umsókn skal berast rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is. Umsókninni á að fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?