Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

 

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Aðstoð í eldhúsi/þvotti

 

 

 

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

Aðstoð í eldhúsi og þvotti

  • Ótímabundið 60% starf frá 4. ágúst 2026 (eða eftir samkomulagi)

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Gleði og jákvæðni.

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 26. júní næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælum skal berast í tölvupósti til gudny.kristin@hunathing.is.

Frekari upplýsingar veitir Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?