Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

  • Aðstoðarleikskólastjóri
  • Sérkenslustjóri og tengiliður farsældar
  • Deildarstjóri

Leikskólinn Ásgarður auglýsir eftirfarandi framtíðarstörf:

100% starf aðstoðarleikskólastjóra frá 1. október 2025 eða eftir samkomulagi

  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri og faglegu starfi leikskólans.
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins ásamt viðveru í daglegu starfi
  • Sinnir þeim verkefnum sem varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum hverju sinni.

100% starf sérkennslustjóra og tengilið farsældar frá 1. október 2025 eða eftir samkomulagi

  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla.
  • Hefur umsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.
  • Sinnir einstaka börnum og barnahópum með íhlutun.
  • Leiðbeinir og þjálfar starfsfólki á deild.
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.
  • Er tengiliður farsældar í leikskólanum.

100% starf deildarstjóra frá 1. október 2025

  • Annast daglega verkstjórn á deild og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni.
  • Situr foreldrafundi, starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Færni í samskiptum
  • Skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópstarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.

Umsóknarfrestur er til 29. ágúst næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á gudny.kristin@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Guðný Kristín Guðnadóttir, 451-2343 eða 846-0162

 

 

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?