Lausar stöður í Ásgarði Leikskólakennarar-leiðbeinendur

Lausar stöður í Ásgarði Leikskólakennarar-leiðbeinendur

Við leikskólann Ásgarð eru lausar stöður leikskólakennara / leiðbeinanda í 100% störf. Ein staða til frambúðar og ein staða tímabundið.

Við leitum að jákvæðum einstaklingum með:

  • Tilskilda menntun, leyfisbréf
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á www.asgardur.leikskolinn.is

Hugmyndafræði skólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 15. desember næstkomandi og þarf viðkomandi að hefja störf frá 6. janúar 2020. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 451-2343 / 891-8264

Var efnið á síðunni hjálplegt?