Lausar stöður hjá Húnaþingi vestra í sumar

Flokkstjóri í Vinnuskóla

Í starfinu felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga á aldrinum 13 til 16 ára við ýmis garðyrkjustörf o.fl. einnig leiðsögn, hópefli og hvatning til góðra verka. Hæfniskröfur: Æskilegur aldur 20 ár eða eldri, menntun og reynsla í störfum tengdum ungu fólki.

Mikilvægt er að umsækjendur séu stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir unglingana. Hafi góða þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

Almenn verkamannastörf í Áhaldahúsi:

Meðal starfa eru ýmis viðhaldsverkefni á vegum sveitarfélagsins, s.s veitur og fl.

Reynsla og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu vera fæddir 1994 eða fyrr og nauðsynlegt er að þeir hafi bílpróf og dráttarvélapróf, reynsla af sambærilegu starfi er kostur, Samviskusemi og stundvísi.

Vegna þessara starfa skal skila inn skriflegri umsókn til skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 9. maí næstkomandi. Í umsókninni þarf að koma fram; Almennar upplýsingar, menntun, fyrri störf og annað sem umsækjandi telur viðeigandi. Frekari upplýsingar og upplýsingar um launakjör eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?