Laus störf við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Laus störf við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra óskar eftir að ráða tvo öfluga einstaklinga í 75-90% störf frá 1. október 2021.

Um er að ræða eina 90% stöðu fyrir kvenkyns starfsmann í afleysingar í 11 mánuði og eina 75% stöðu fyrir karlkyns starfsmann sem er til frambúðar.

Leitað er að einstaklingum sem hafa :


- ríka þjónustulund.
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði.
- góða hæfni í mannlegum samskiptum.
- reynsla er kostur.
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.

Lýsing á starfinu:

Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. öryggisgæslu á útisvæði og búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör, þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.

Umsækendur skulu vera orðnir 18 ára og æskilegt er að viðkomandi standist stöðupróf í sundi.

Vinnutími: Vaktavinna

Launarkjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningum launanefndar sveitafélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.

Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið : tanja@hunathing.is eða skili umsókn á skrifstofu Húnaþing vestra.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2021.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?