Hefur þú brennandi áhuga á að vinna með ungmennum, styrkja þau og efla í tómstundum?
Félagsmiðstöðin Órion á Hvammstanga leitar að tveimur áhugasömum starfsmönnum í tímavinnu til að sinna því fjölbreytta starfi sem þar fer fram. Um er að ræða hlutastarf sem fer að mestu leyti fram á kvöldin á virkum dögum. Hentar starfið því einstaklega vel samhliða námi eða annarri vinnu.
Í Órion er lögð áhersla á faglegt og metnaðarfullt tómstundastarf fyrir nemendur í 5.–10. bekk með það að markmiði að skapa öruggt, skemmtilegt og hvetjandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeina og styðja ungmenni í starfi félagsmiðstöðvarinnar.
- Skipuleggja og taka þátt í fjölbreyttu hópastarfi, viðburðum og verkefnum.
- Skapa jákvætt, öruggt og hvetjandi umhverfi.
- Efla þátttöku, félagsfærni og virk samskipti unglinga.
- Taka þátt í þróun starfsins og samstarfi við annað starfsfólk.
Menntun og reynsla
- Reynsla af félagsmiðstöðva-, íþrótta- eða tómstundastarfi er kostur.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Námskeið eða þjálfun sem tengist ungmennastarfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir ungmenni.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar hefst vikuna 14.–18. september. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á johann@hunathing.is. Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026.
Frekari upplýsingar veitir Jóhann Örn Finnsson, netfang: johann@hunathing.is, sími 844-1150.