Laus staða í stoðþjónustu við Grunnskóla Húnaþings vestra

Laus staða í stoðþjónustu við Grunnskóla Húnaþings vestra

Laus er til umsóknar 100% staða kennara í stoðþjónustu frá og með 3. janúar 2024. Möguleiki er á að hefja störf fyrr.

Grunnskóli Húnaþings vestra leitar að metnaðarfullu, sjálfstæðu og drífandi starfsfólki með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Í Grunnskóla Húnaþings vestra stunda um 140 nemendur nám við 1.-10.bekk. Lögð er áhersla á hvetjandi skólabrag og unnið eftir uppeldisstefnunni Jákvæðum aga. Starfsmenn skólans eru um 40 talsins.

Gott samstarf er milli skólastiga í Húnaþingi vestra og við tónlistarskóla. Árið 2022 var tekin í notkun ný 1200fm viðbygging við skólann sem skapaði enn betri umgjörð um skólastarfið og býður upp á fleiri þróunarmöguleika en áður. Tónlistarskóli Húnaþings vestra er staðsettur í sama húsnæði og grunnskólinn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sérkennsla

  • Aðstoð við gerð einstaklingsnámskráa

  • Ráðgjöf varðandi skipulag á kennslu nemenda með sérþarfir

  • Teymisfundir

  • Situr fundi í nemendaverndarráði og stoðþjónustu

 

Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari

  • Réttindi til að starfa sem sérkennari

  • Reynsla af grunnskólastarfi

  • Leyfi til að leggja fyrir skimanir og greiningarpróf

  • Þekking og reynsla á jákvæðum aga

  • Hæfni til að tjá sig á íslensku í ræðu og riti

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsókn sendist á eydisbara@skoli.hunathing.is

Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Bára Jóhannsdóttir, skólastjóri, í síma 455-2400, netfang: eydisbara@skoli.hunathing.is

Umsóknarfrestur er til 11. október 2023

Var efnið á síðunni hjálplegt?