Laus staða í leikskólanum Ásgarði - leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Ásgarður auglýsir:
- Tímabundið 100% starf frá 16. júlí 2025 til 3. júlí 2026
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á að starfa með börnum, reynsla af starfi með börnum er kostur
- Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/
Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.
Umsóknafrestur er til 25. júní næstkomandi. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á kristinn.benjaminsson@hunathing.is
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.