Lagningu ljósleiðara í Húnaþingi vestra lokið

Lagningu ljósleiðara í Húnaþingi vestra lokið

Á dögunum náðist sá merki áfangi að lagningu ljósleiðara í Húnaþingi vestra lauk með síðustu tengingunum í elsta hluta Hvammstanga. Var verkefnið seinni hluti átaks um lok ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026 sem samið var um haustið 2024. Þegar það samkomulag var gert hafði lengi ríkt óvissa um hvort og þá hvenær yrði unnt að tengja lögheimili í þéttbýli um land allt við háhraðanet. Áður hafði verið lokið við lagningu ljósleiðara í dreifbýli með styrkjum frá Fjarskiptasjóði.

Í fyrri hluta þessa lokaátaks í Húnaþingi vestra voru lögheimili á Laugarbakka og á Hvammstanga tengd sumarið 2025.

Fyrri markmið ríkisins gengu út á að lokið yrði við ljósleiðaravæðingu fyrir árslok 2028 og þá var miðað við að 80% lögheimila í þéttbýli yrðu tengd. Þeim áformum var flýtt með fyrrgreindu samkomulagi og jafnframt var með því stefnt að því að 100% heimila hefðu aðgengi að háhraðaneti í stað 80% áður. 

Þau sem fengu tengingu í þessum lokaáfanga á Hvammstanga geta því nú pantað sér nettengingu um ljósleiðara Mílu frá sínu fjarskiptafélagi.

Hægt er að sjá lista yfir fjarskiptafélög sem selja netþjónustu um ljósleiðara Mílu á https://www.mila.is/get-eg-tengst. Þar er jafnframt hægt að óska eftir tengingu við það fjarskiptafélag sem óskað er eftir að vera í viðskiptum við.

Var efnið á síðunni hjálplegt?