Lagning ljósleiðara á Hvammstanga

Lagning ljósleiðara á Hvammstanga

Innan fárra daga mun hefjast jarðvinna í tengslum við lagningu ljósleiðara á Hvammstanga. Míla annast verkefnið og hefur fengið FK verk til að annast jarðvinnuna. Gert er ráð fyrir að henni verði lokið fyrir lok júlí. Í framhaldi af því verður ljósleiðaranum blásið í rörin og heimtaugar tengdar. Framkvæmdasvæðið má sjá á mynd hér að neðan. Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Míla.

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Húnaþing vestra var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?