Kvenfélagið Björk færir sveitarfélaginu veglega gjöf

Félagskonur úr kvenfélaginu Björk við bekkinn góða.
Félagskonur úr kvenfélaginu Björk við bekkinn góða.

Á degi kvenfélagskonunnar þann 1. febrúar 2023, færði kvenfélagið Björk á Hvammstanga sveitarfélaginu bekk að gjöf. Með bekknum vilja þær minnast látinna kvenfélagskvenna. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri, veitti bekknum viðtöku fyrir hönd sveitarfélagsins og þakkaði kvenfélagskonum hjartanlega þessa höfðinglegu gjöf og þeirra ómetanlegu störf í þágu samfélagsins um áratuga skeið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?