Kjörfundur 16. maí 2026 – sveitarstjórnarkosningar

Kjörfundur 16. maí 2026 – sveitarstjórnarkosningar
Kjörfundur til sveitarstjórnarkosninga í Húnaþingi vestra verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 16. maí 2026. Kjörfundur stendur frá kl. 09:00–22:00.
Kjósendum ber að framvísa skilríkjum á kjörstað ef þess er óskað.
Bent er á að kjörskrá er aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins sem og frekari upplýsingar á vefnum kosning.is.
Atkvæði verða talin að loknum kjörfundi í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst talning upp úr kl. 22:30.
Bent er á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í ráðhúsi á opnunartíma þess.
Kjörstjórn Húnaþings vestra.
Var efnið á síðunni hjálplegt?