Kaldavatnslaust á Laugarbakka

Kaldavatnslaust á Laugarbakka

Vegna bilunar í dælu sem dælir vatni úr brunni í vatnstank er kaldavatnslaust á Laugarbakka. Vatn verður flutt í vatnstank eins og kostur er en ljóst að ekki verður hægt að mæta hefðbundinni notkunarþörf. Íbúar á Laugarbakka eru því beðnir um að spara vatn eins og nokkur kostur er þar til dæla verður komin í lag. Nánari upplýsingar um hvenær það verður verða veittar um leið og þær liggja fyrir.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og íbúum þökkuð samvinnan.

Var efnið á síðunni hjálplegt?