Jólaföndur Foreldrafélags Grunnskóla Húnaþings vestra

Kæru íbúar Húnaþings vestra. Jólaföndur Foreldrafélagsins verður haldið í matsal Grunnskólans á Hvammstanga fimmtudaginn 27.nóv kl.16:30 - 19:30. Föndurvörur til sölu á staðnum koma frá verslunni Hlín á Hvammstanga. Einnig mun Dagga koma í heimsókn til okkar með góð ráð og sniðugar hugmyndir.

 

Veitingar verða í formi sameiginlegs framlags þar sem hver og einn kemur með eitthvað smátt á hlaðborð. Foreldrafélagið býður upp á kakó, kaffi/te og djús. 

Okkur yrði sönn ánægja að sjá ykkur sem flest og eiga með ykkur notalega stund í anda jólanna.

 

stjórnin

Var efnið á síðunni hjálplegt?