Innritun í tónlistaskólann fyrir veturinn 2026-2027

Innritun í tónlistaskólann fyrir veturinn 2026-2027

Kæru íbúar.

Innritun í tónlistarnám í Tónlistarskóla Húnaþings vestra fyrir veturinn 2026 - 2027 stendur yfir til 3. júní 2026.

Helstu hljóðfæri og greinar sem skólinn býður uppá eru: Forskólanám (fyrir 4 - 5 ára börn), píanó, gítar, þverflauta, trommur, bassi, rafgítar og söngur. Auk þess er hægt að skrá nemendur í hóptíma þar sem hljómsveitarsamspil fer fram. Þar gefst nemendum kostur á að prófa ýmis hljóðfæri.

Í vetur vorum við með 95 nemendur við skólann á öllum aldri, enda aldrei of seint að hefja tónlistarnám :)

Hér er slóð inn á umsóknareyðublaðið:

https://tonviska.is/form/95/72rho8a04y8e2ce4/

 

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að koma í heimsókn í skólann, senda póst á: palinaf@skoli.hunathing.is eða hringja í Pálínu í síma: 8677159.

Var efnið á síðunni hjálplegt?