Íbúafundur vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu kynnir starf sitt fyrir íbúum í Borgarbyggð, Húnaþingi vestra, Húnavatnshreppi, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi í Félagsheimilinu á Hvammstanga mánudaginn 20. ágúst nk. kl. 17:00.

 

Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði síðastliðið vor þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka, fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins. 

Mánudaginn 20. ágúst, kl. 17:00-18:00 mun formaður nefndarinnar, Óli Halldórsson, kynna verkefni nefndar og svara spurningum áhugasamra um störf nefndarinnar.

 

Fundurinn fer fram í félagsheimilinu á Hvammstanga og eru allir velkomnir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?