Íbúafundir vegna sameiningar

Íbúafundir vegna sameiningar

Við minnum á íbúafundi í vikunni vegna hugsanlegrar sameiningar Húnaþings vestra og Dalabyggðar.

Dalabúð mánudaginn 17. nóvember kl. 17-19. Streymi af fundi.

Félagsheimilið Hvammstanga 18. nóvember kl. 17-19. Streymi frá fundi.

Að þessu sinni verða ekki umræður á borðum heldur verður niðurstaða sameiningarnefndar kynnt og hún situr svo fyrir svörum fundargesta. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundina og taka þátt í umræðum um þetta mikilvæga mál.

Báðum fundunum er streymt fyrir þau sem ekki hafa tök á að mæta. Upptökur verða einnig aðgengilegar að afloknum fundum.

Einnig er minnt á upplýsingasíðu verkefnisins www.dalhun.is en þar er hægt að fá upplýsingar um þá vinnu sem fram hefur farið og senda inn fyrirspurnir. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?