Húsnæðisbætur

Húsnæðisbætur 2017

Frá janúar 2017 mun Vinnumálastofnun annast greiðslur húsnæðisbóta sem koma í staðinn fyrir húsaleigubætur sem áður var sótt um til sveitarfélaga.

Opnuð hefur verið heimasíða: www.husbot.is, þar eru helstu upplýsingar að finna, reiknivél til að skoða hvernig bætur munu verða og hægt er að senda inn rafræna umsókn.  Þar er einnig að finna eyðublað til útfyllingar fyrir þá sem ekki hafa tök á því að sækja um rafrænt.

Sveitarfélagið Húnaþing vestra mun setja sér reglur um sérstakan húsnæðisstuðning sem ætlað er að lækka greiðslubyrði til viðbótar við húsnæðisbætur og vegna leigu 15-17 ára leigjenda á heimavistum og námsgörðum. Hægt verður að sækja um þann stuðning í janúar 2017 í Ráðhúsinu.

Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi, sími 455 2400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?