Húseign til sölu

Húseign til sölu

Húnaþing vestra auglýsir til sölu húseignina að Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga, fasteignanúmer F2133934 og F2133935. Um er að ræða skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum auk kjallara ásamt stakstæðum bílskúr.

Eignin er seld í því ástandi sem hún er við sölu og eru áhugasamir kaupendur hvattir til að kynna sér ástand hennar vel áður en tilboð er gert.

Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en kl. 12:00 mánudaginn 30. nóvember 2026. Umslagið skal merkt „Hvammstangabraut 5 – kauptilboð“. Í tilboði skal koma fram hvernig kaupandi hyggst nýta húsið.

Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Nánari upplýsingar veitir Ingimar Ingimarsson, eignir@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?