Húsaleigubætur fyrir námsmenn

Námsmenn í framhaldsskólim og háskólum eru minntir á að sækja um húsaleigubætur fyrir haustönn 2014!  Umsókn þarf að berast sem fyrst en fylgigögn verða að hafa borist innan tveggja mánaða.

Fylgigögn eru: þinglýstur leigusamningur, staðfesting frá skóla, staðfest skattframtal 2014 og launaseðlar þriggja síðustu mánaða þeirra sem lögheimili/búsetu eiga í íbúðinni.  Umsóknareyðublað er hægt að finna á vefnum eða í Ráðhúsinu að Hvammstangabraut 5.

Til að fá greiddar bætur fyrir septembermánuð þarf umsókn að berast ekki síðar en 16. september 2014, en bætur verða ekki greiddar fyrr en öll nauðsynleg gögn hafa borist.  Ekki er nauðsynlegt að senda inn gögn sem þegar eru til staðar.

Nánari upplýsingar veitir Henrike Wappler, umsjónarfélagsráðgjafi, í síma 455 2400 eða netfang henrike@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?