Húsaleigubætur 2016

Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og því þurfa allir sem telja sig eiga rétt á húsaleigubótum að sækja um húsaleigubætur fyrir 2016.

Umsóknareyðublað er hægt að finna hér eða í Ráðhúsinu að Hvammstangabraut 5.  Til að fá greiddar bætur fyrir janúarmánuð þarf umsókn að berast ekki síðar en 16. janúar 2016, en bætur verða ekki greiddar fyrr en öll nauðsynleg gögn hafa borist.  Ekki er þó nauðsynlegt að senda inn gögn sem þegar eru til staðar eins og t.d. leigusamning og skattframtal 2015.

Helstu fylgigögn: þinglýstur leigusamningur, staðfest skattframtal 2015 og launaseðlar þriggja síðustu mánaða þeirra sem lögheimili/búsetu eiga í íbúðinni, staðfesting frá skóla.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar veitir Henrike Wappler, yfirfélagsráðgjafi, í síma 455 2400 eða netfang henrike@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?