Húsaleigubætur 2014

Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og því þurfa allir sem telja sig eiga rétt á húsaleigubótum að sækja um húsaleigubætur fyrir 2014.

Umsóknareyðublað er hægt að finna hér eða í Ráðhúsinu að Hvammstangabraut 5.  Til að fá greiddar bætur fyrir janúarmánuð þarf umsókn að berast ekki síðar en 16. janúar 2014, en bætur verða ekki greiddar fyrr en öll nauðsynleg gögn hafa borist.  Ekki er nauðsynlegt að senda inn gögn sem þegar eru til staðar eins og leigusamning og skattframtal 2013.

Fylgigögn: þinglýstur leigusamningur, staðfest skattframtal 2013 og launaseðlar þriggja síðustu mánaða þeirra sem lögheimili/búsetu eiga í íbúðinni, staðfesting frá skóla (hjá námsmönnum).

Nánari upplýsingar veitir Henrike Wappler, umsjónarfélagsráðgjafi, í síma 455 2400 eða netfang henrike@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?