Húnaþing vestra, Þjónustumiðstöð - Vélamaður óskast.

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða vélamann í fullt starf í þjónustumiðstöð (áhaldahús) sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf hið fyrsta. Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands. Leitað er eftir áhugasömum, jákvæðum og úrræðagóðum starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og hefur til að bera ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum. Krafist er að viðkomandi hafi full vinnuvélaréttindi einnig væri æskilegt að umsækjandi hafi meiraprófsréttindi.        Nánari upplýsingar um starfið veita Ólafur H. Stefánsson, rekstrarstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs í síma 455-2400 og á netfanginu byggingarfulltrúi@hunathing.is og Sigurbjartur Halldórsson sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs í síma 455-2400 og á netfanginu sigurbjartur@hunathing.is. Umsóknum, sem skulu vera skriflegar, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir kl. 16:00,  þriðjudaginn 8. maí nk. Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja starfsumsókn.

Sigurbjartur Halldórsson,

Sviðsstjóri Framkvæmda-og umhverfissviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?